EFFIE.is



Stuðningsaðilar EFFIE 2006



 





24.11.2006

ENNEMM fær tvö EFFIE verðlaun

Verðlaun voru í dag (föstudag 24.11) veitt í EFFIE keppninni 2006 sem haldin er af Sambandi íslenskra auglýsingastofa. ENNEMM fékk tvö EFFIE (gull og silfur), Íslenska auglýsingastofan og H:N markaðssamskipti eitt gull EFFIE hvor og Hvíta húsið eitt silfur EFFIE.

17 innsendingar bárust í EFFIE keppnina að þessu sinni. Keppt var í tveimur flokkum; Vara og Þjónusta. SÍA óskar vinningshöfum innilega til hamingju með EFFIE stytturnar og þakkar öllum þátttakendum í EFFIE keppninni. Smelltu hér fyrir nánari fréttir af verðlaunahöfum.

23.11.2006

Effie verðlaunin veitt

Effie samkeppnin er nú komin á lokastig þar sem veitt verða verðlaun fyrir bestu auglýsingaherferðina 2006. Veitt verða verðlaun í tveimur flokkum samkvæmt reglum keppninar; Vörur og Þjónusta. Þeir sem hafa áhuga á að vera við verðlaunaafhendinguna á Nordica Hotel, þá hefst hún kl. 12:00 á föstudag 24. nóvember. Áhugasamir þurfa að skrá sig í sia@sia.is.

Forvitnilegur fyrirlestur
Á verðlaunaafhendingunni mun Patrick Collister, virtur auglýsingamaður frá Englandi; fyrrverandi Creative Director Ogilvy auglýsingastofunnar, flytja forvitnilegan fyrirlestur um samhengi skapandi vinnu í auglýsingum og árangurs af markaðsherferðum.




Innsendingar í EFFIE keppnina
Nú er opið fyrir innsendingar í EFFIE keppnina en innsendingarfrestur er til 1. nóvember (sein innsending/hærra gjald; 8. nóvember). Smelltu á <Þátttaka> hér fyrir ofan til að nálgast innsendingargögn.

Fyrir þá sem eru að undirbúa innsendingu í EFFIE keppnina skal bent á að nú hefur verið opnuð gátt á vefsvæði Outcome (samstarfsaðila SÍA við framkvæmd EFFIE keppninnar) til að senda inn öll innsendingargögn. Á þessu svæði hlaða þátttakendur inn bæði greinargerð fyrir herferð (pdf. skjalið "Effie.Umsokn.Form.pdf" og þeim auglýsingagögnum sem þurfa að fylgja.

Smelltu hér til að komast á Outcome vefsvæðið. Slóðin: http://effie.outcomesurveys.com




Árangurinn í sviðsljósinu - Taktu þátt í EFFIE samkeppninni
SÍA efnir til samkeppni um EFFIE verðlaun hér á landi og verða verðlaun veitt 24. nóvember næstkomandi. Þetta verður í annað sinn sem EFFIE keppnin er haldin hér á landi en sú fyrsta fór fram árið 2003. EFFIE verðlaunin eru veitt fyrir afburða árangur í auglýsinga- og markaðsstarfi. Frestur til að skila innsendingum er 1. nóvember (seinar innsendingar 8. nóvember).
Þeir sem hyggjast taka þátt í EFFIE keppninni geta nálgast allar upplýsingar á www.effie.is. Smelltu á "Þátttaka" hér fyrir ofan til að sækja innsendingargögn (gagnvirkt .pdf skjal).


Viðurkenning fyrir árangur í markaðsstarfi
Effie verðlaunin eru viðurkenning fyrir auglýsinga- og kynningarefni þar sem saman fer frjó og skapandi hugsun og næm tilfinning og þekking á skilyrðum þess að ná árangri í markaðssetningu á vöru og þjónustu. Effie verðlaunum er þannig ætlað að stuðla að markvissari og árangursríkari markaðssetningu.

Effie er samnefnari þeirra gilda sem eru í fararbroddi í áhrifaríkum auglýsingum. Engin auglýsingaverðlaun eru eins hátt skrifuð og eftirsótt í jafn mörgum löndum.