24. nóvember 2006 18:18
Verðlaun voru í dag (föstudag 24.11) veitt í EFFIE keppninni 2006 sem haldin er af Sambandi íslenskra auglýsingastofa. ENNEMM fékk tvö EFFIE (gull og silfur), Íslenska auglýsingastofan og H:N markaðssamskipti eitt gull EFFIE hvor og Hvíta húsið eitt silfur EFFIE.

17 innsendingar bárust í EFFIE keppnina að þessu sinni. Keppt var í tveimur flokkum; Vara og Þjónusta. SÍA óskar vinningshöfum innilega til hamingju með EFFIE stytturnar og þakkar öllum þátttakendum í EFFIE keppninni. Smelltu hér fyrir nánari fréttir af verðlaunahöfum.
Eftirtalin fyrirtæki og auglýsingastofur hlutu EFFIE verðlaun.
Vara:
Tvenn Gull EFFIE og eitt Silfur EFFIE voru veitt í flokknum Vara:
Þjónusta:
Effie verðlaunin eru viðurkenning fyrir auglýsingaherferðir, auglýsinga- og kynningarefni þar sem saman fer frjó og skapandi hugsun og næm tilfinning og þekking á skilyrðum þess að ná árangri í markaðssetningu á vöru og þjónustu. Effie verðlaunum er þannig ætlað að stuðla að markvissari og árangursríkari markaðssetningu. Sérstaklega er horft til þess að sannanir séu færðar fyrir árangri herferða.
Nánar um herferðirnar:
4x4xCR-V Honda bílar:
Honda CR-V keppti á markaði jepplinga í gífurlega harðri samkeppni þar sem tilboðum um afslátt og aukahlutapakka rigndi yfir. Kannanair leiddu í ljós að upplifun markhópsins varðandi verð var ekki í takt við raunveruleikann. Ákveðið var að halda þeirri stefnu að taka ekki þátt í gylliboðum en búa til nýjan markað “borgarjeppa” þar sem Honda CR-V yrði toppurinn. Ein laf leiðunum til þess var að leiðrétta verðímyndina um leið og gæðum bílsins var haldið fram.
Herferðin tókst yfirmáta vel, 99% söluaukning náðist eða 57% umfram markaðinn.
Glitnir – ímyndarherferð:
Ímyndarherferð Glitnis sýnir hvernig hægt er með faglegum vinnubrögðum og skapandi auglýsingastarfi að snúa neikvæðri þróun við og komast í vinningsstöðu.
Rannsóknir sanna að Glitnir er nú álitinn fremstur íslenskra banka, bæði af almenningi og stjórnendum fyrirtækja.
KB banki: Nám er lífsstíll
KB banki tapaði umtalsverðri markaðshlutdeild meðal námsmanna árið 2004 í kjölfar sameiningar Kaupþings og Búnaðarbankans. Markmið herferðarinnar Nám er lífssstíll var að endurheimta stöðu bankans meðal námsmanna. Þetta hefur tekist og gott betur þar sem KB banki er í dag með mestu markaðshlutdeild af bönkunum meðal námsmanna. Auk þess hefur herferðin unnið til margara verðlauna fyrir hugmyndaauðgi.
Toyota á Íslandi: Toyota Aygo
Allt fram til seinni hluta ársins 2005 hafði Toyota ekki bíl til þess að keppa í A flokki samkvæmt flokkun Skráningarstofu á bílamarkaðnum. Menn gerðu sér grein fyrir því að þessi flokkur yrði gríðarlega mikilvægur á næstu árum og hófu því innflutning á nýjum bíl frá Toyota – Aygo. Markaðssetningin á honum er einhver sú best heppnaða á bílamarkaðnum hingað til en með tilkomu hans meira en fjórfaldaðist stærð A flokksins á einu ári, varð 463 bílar. Í þessum flokki náðist það einstaka afrek að Aygo náði ríflega 65% hlutdeild á einu ári auk þess sem hann færði Toyota nýja viðskiptavini og lækkaði meðalaldur kaupenda verulega.
Íslensk getspá – Lýður Oddsson
Lottóið er leiðandi á happdrættismarkaðnum. Hin markaðslega áskorun felst í því að viðhalda áhuga þjóðarinnar, sérstaklega þegar pottarnir eru einfaldir og vinningsupphæpðir hlutfallslega lágar. Lýður Oddsson sér um að skemmta “þjóðarsálinni” allt árið um kring og sölutölur sýna að hann hefur aukið fjölda þeirra sem spila vikulega, óháð pottastærð.
Sjá nánar um EFFIE keppnina erlendis, í Evrópu, Bandaríkjunum og víðar hér á www.effie.is undir hnappnum “EFFIE á heimsvísu”.
Innsendingar í EFFIE 2006